Kannski vildi Mirza bara faðmlag
LeBron James var ekki sáttur við Mirza Teletović í nótt eftir að sá síðarnefndi braut á honum í hraðaupplaupi.
Niðurstaðan í málinu var að LeBron fékk dæmda á sig sóknarvillu fyrir brotið á Andrei Kirilenko á meðan Mirza fékk dæmda á sig óíþróttamannslega villu fyrir brotið á LeBron sem skilaði Miami boltanum aftur og tveimur vítum.
Mirza bar hins vegar ekki mikla virðingu fyrir LeBron í öllum látunum.
Mirza hló bara af látunum í kónginum
So, to recap, Mirza Teletovic laughed in LeBron James' face when LeBron was coming after him. The NBA, where amazing happens.
— Andy Vasquez (@andy_vasquez) January 11, 2014
Nets unnu leikinn 104-95 eftir tvær framlengingar og eru því enn ósigraðir á nýja árinu.
