Um Fúsíjama TV

Fúsíjama TV er frjálst og óháð körfuboltablogg og er fjölmiðlaangi Fúsíjama Group sem einnig rekur Fúsíjama BCI körfuboltastórveldið. Fúsíjama Group og öll undirfélög þess hafa höfuðstöðvar sínar í hjarta Vestfjarða, Hnífsdal.

Fúsíjama TV var stofnað í byrjun 21. aldarinnar með það að markmiði að vera ósvífin áróðursmaskína stórveldisins. Hefur það gengið eftir með þeim árangri að félagið er orðið heimsfrægt í Japan.


Ritstjórn ber enga ábyrgð á afleiðingum sem kunna að hljótast af því að stuðst hafi verið við efni sem birtist á vef þessum. Athugasemdum og aðfinnslum þessu tengt ber að koma á framfæri við ritstjórn Fúsíjama TV sem mun svo snarlega vísa þeim til lögfræðideildar félagsins.

Réttlæti - frelsi - ábyrgð - umhyggja. Fjórir hlutir sem lögfræðideild okkar þekkir ekki


Lögfræðideild Fúsíjama Group áskilur sér allan rétt til að nota viðurkenndar íslenskar aðferðir til þess að tryggja hag félagsins á sem bestan hátt, hvort sem það felist í mútunum, brottnámi á skoðanaandstæðingum eða gamaldags uppitöku á gengistryggða bílnum þínum.

Fylgdu okkur á
Facebook
Vefumsjón