Sideshow Bob á leiđinni til Warriors

Dags: miđvikudagurinn 25. júní 2008
Eftir Sturla Stígsson | Greinar

Heilmikið af kjaftasögum í gangi í körfunni í dag, og vafalaust flestar af þeim uppspuni frá rótum.

Anderson "SideShow Bob" Varejoe á leiðinni til Warriors í skiptum fyrir Al Harrington.

T.J. Ford á leiðinni í burtu frá Toronto. Now there´s a surprise eða þannig. Liðið spilaði mikið betur eftir að hann meiddist, enda Jose Calderon margfalt betri leikstjórnandi en Ford. Enda hugsar Ford um að skjóta fyrst og skjóta svo, sem er kannski ekki beint besti hugsunarhátturinn á leikstjórnanda. Og ég sem hélt að heimskuleg skipti heyrðu sögunni til hjá Knicks, en svo er víst ekki því þeir eru að reyna að fá hann. Bjóða reyndar Fat Curry eða Fat Randolph í staðinn þannig að kannski er þetta ekkert of heimskuleg skipti.

Jermaine "Black Hole" O'Neal er hugsanlega á leiðinni til Toronto fyrir Ford. Ég skil ekki hver myndi vilja þennan gaur. Ábyggilega vænsti gaur, en það er staðreynd að Indiana hefði líklegast komist í úrslitakeppnina ef hann hefði haldið sig heima, enda voru þeir mikið betri þegar hann var meiddur en þegar hann spilaði. Hann er ofmetinn, hengur á boltanum og sendir nánast aldrei. Þar fyrir utan er hann orðinn gamall miðað við að hann er bara 30 ára. En hann er búinn að spila í NBA í 12 ár og hefur misst af 124 leikjum á síðustu 4 tímabilum.

Marcus Camby á leiðinni til Nets. Já, það hefur alltaf borgað sig að veðja á leikmenn sem hafa langa meiðslasögu. Niðurstaðan verður að Camby spilar sirka 50 leiki og Nets missa af úrslitakeppninni. Aftur.

Ólympíuliđ Bandaríkjanna tilkynnt

Dags: mánudagurinn 23. júní 2008
Eftir Sturla Stígsson | Greinar

Ólympíulið Bandaríkjanna, nú kallað Team USA í stað Dream Team sem á varla lengur við eftir nokkra ára "niðursveiflu" hjá landsliðinu, var tilkynnt í dag og eru þar nokkrir góðir kappar.


Meira

World Champs?

Dags: mánudagurinn 23. júní 2008
Eftir Sturla Stígsson | Greinar

Það er alltaf gaman að lesa fréttirnar frá Bandaríkjunum um að sigurvegararnir úr NBA, NFL, NHL osfrv. séu "World Champs", enda eru Bandaríki Norður Ameríku eina landið sem heldur "heimsmeistarakeppnir" án þess að bjóða neinum öðrum þjóðum að taka þátt (kanada telst ekki með).

Nýjasta dæmið í þessum sirkusleik þeirra er einmitt Boston Celtics, en fjölmiðlar þarna ytra keppast nú við að hylla þá sem hina nýju heimsmeistara. Sem er ansi hjákátlegt í ljósi þess að það var bara einn leikmaður í Finals seríunni sem gat með réttu kallað sig "World Champion" en það er einmitt spænski sykurpúðinn Pau Gasol* sem vann titilinn með spænska landsliðinu árið 2006.

*Gaurinn er svo "soft" að ég er viss um að Charles Oakley hefur snúið sér við í gröfinni (eða sófanum, hann er ekki alveg dauður enn) og hugsað með sér að hann hefði flengt hann þrátt fyrir að vera 44 ára gamall.

Urban Dictonary

Dags: miđvikudagurinn 18. júní 2008
Eftir Sturla Stígsson | Greinar

Lakers glopra niđur 24 stiga forustu (Finals met) og tapa

Dags: föstudagurinn 13. júní 2008
Eftir Sturla Stígsson | Greinar

Celtics Vs. Fakers

Dags: miđvikudagurinn 11. júní 2008
Eftir Sturla Stígsson | Greinar

Los Angeles* Lakers tókst að minnka muninn í viðureigninni við Boston Celtics með sigri á þeim grænklæddu í gær. Fremstur í flokki Hollywood stjarnanna var síðhærði gaurinn með stelpunafnið, Sasha**, sem skoraði 20 stig en hann fékk einnig mikla hjálp frá þeim félögum Paul Pierce og Kevin Garnett sem tóku eitt stórt tjók á þetta og hittu bara úr 8 af 35 skotum sínum. Miðlungsspilarinn Kobe Bryant áttaði sig svo loksins á því að Ray Allen hefur aldrei getað blautan skít í vörn og setti niður 12 af 20 skotum sínum.

Lakers voru samt ekkert rosalega sannfærandi. Þeir unnu því bæði Pierce og Garnett voru út á þekju. Ray Ray var sá eini sem mætti til leiks hjá Boston á meðan Lakers voru ekki mikið skárri, einungis Kobe og stelpan á lífi. Allir aðrir sem komu inná voru uppteknir við að gera upp á bak.

* Í alvörunni, er hægt að finna verri borg til að bera nafnið "Borg Englanna"?
** Sasha notar líka hárband, sem hjálpar baráttu hans gegn því að vera kallaður stelpa nákvæmlega ekki neitt.

Boston Baby!

Dags: mánudagurinn 9. júní 2008
Eftir Sturla Stígsson | Greinar

Nú hljóta Kalli og Guðni að vera kátir. Boston búið að vinna fyrstu 2 leikina og komnir með aðra höndina á titilinn.
Meira

Lakers Vs. Celtics

Dags: fimmtudagurinn 5. júní 2008
Eftir Sturla Stígsson | Greinar

Lakers og Celtics í the Finals. Újé. Gæti ekki hafa verið betra.


Meira

NBA blogg dagsins

Dags: miđvikudagurinn 21. maí 2008
Eftir Sturla Stígsson | Greinar

"I love retelling the story of how Rip once said: "I know before I get the ball if the shot is going in or not." Why do basketball players make ridiculous statements like that? It would be like some idiot saying that this year's Lakers team is the best squad Kobe Bryant's ever been on. Oh, wait...." 






Vá hvað hann var kátur þarna....og ýminda sér, hann hefði getað samið við Bulls sem fengu fyrsta valréttinn. 

Dagurinn sem Mike James og Bonzi Wells voru kynntir sem leikmenn Hornets

Dags: ţriđjudagurinn 20. maí 2008
Eftir Sturla Stígsson | Greinar

Hornets hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir að hafa fyrr í vetur skipt Bobby Jackson til Houston fyrir hinn sjálfumglaða Bonzi Wells og Mike James.


Meira
Fylgdu okkur á
Facebook
Vefumsjón