NBA Finals: Revenge of the Dirk

Dallas Mavericks - NBA meistarar 2011
cHeat 95 - Mavs 105
Dallas Mavericks, með Dirk Nowitzki fremstan í flokki, eru í fyrsta skipti í sögu félagsins NBA meistarar eftir að hafa hefnt ósigursins frá 2006. Þau úrslit voru ljótur blettur á ferli Dirk Nowitzki en núna hefur Dirk komið fram hefndum gegn liðinu sem neitaði honum sínum fyrsta titli 2006. Dirk Nowitzki er NBA meistari. Og LeBron James er það ekki.
Miami náði forystunni snemma í leiknum og var með mest 9 stiga forskot. LeBron hitti fyrstu fjórum skotunum sínum og virtist vera tilbúinn í þennan leik eftir mikla gagnrýni fyrir frammistöðu sína í leik 4 og 5. Líkt og var við að búast gerði Dallas áhlaup og komst yfir í fyrsta leikhluta og hélt forystunni framvegis. Dirk var ekki að hitta blautan en þrátt fyrir það voru Mavericks með tökin mesta allan leikinn og náðu mest 12 stiga forskoti. Miami náði aldrei að gera nógu sterkt áhlaup í fjórða leikhluta til að komast yfir og eiga séns á að vinna. LeBron James var enn og aftur passífur, þrátt fyrir að eiga sterka innkomu í fyrsta leikhluta, og virtist vera að bíða eftir því að Wade myndi sjá um leikinn.
Það er ekki ofsögum sagt að Dallas fór í gegnum úrslitakeppnina sem underdogs. Þeir áttu ekki að vinna Portland því liðið tjókar þegar á reynir, áttu ekki að eiga séns í meistara Lakers, voru of gamlir og hægir fyrir Oklahoma City Thunder og Miami voru að spila alltof vel til að tapa gegn liði eins og Dallas. Augljóslega gáfu þeir skít í alla slíka spádóma og hömpuðu titlinum að lokum og sýndu það að þeir eru óumdeilanlega besta liðið í NBA deildinni.
Dirk Nowitzki sannaði að hann er alvöru ofurstjarna sem skilar sínu þegar mest á reynir. Hann var að sjálfsögðu valinn MVP Finals seríunnar þrátt fyrir að eiga slakan leik í úrslitaleiknum. Skiptir ekki máli - hann var frábær í gegnum alla úrslitakeppnina. Áður hafði Dirk ávallt verið gagnrýndur fyrir að vera soft og vera ekki winner vegna þess sem gerðist 2006 og 2007. Það er kjaftæði og hrossaskítur. Tölfræðilega séð bætir hann sig í úrslitakeppninni en það er undantekningin fremur en reglan hjá ofurstjörnum.
Margir halda að í úrslitakeppnina höfum við verið að horfa á nýjan og betri Dirk. Það er líka hrossaskítur. Dirk hefur verið að gera nákvæmlega sömu hlutina ár eftir ár. Í raun hefur hann oft áður verið betri en í þessari úrslitakeppni. Munurinn núna er sá að liðsfélagar hans eru betri og liðsheildin er miklu sterkari. Frábærlega þjálfað lið og með mikla reynslu innanborðs.
Það væri hægt að ræða út í þaula um flesta leikmenn í Dallas liðinu og hvað hver leikmaður hefur gengið í gegnum til að vinna titillinn. Menn eins og Jason Terry, sem beið ósigur gegn Miami 2006 og fær loksins að hefna sín; Shawn Marion, vanmetinn leikmaður sem var oft nálægt NBA úrslitunum með Phoenix Suns; Tyson Chandler, án hans væri liðið ekki að fagna titlinum núna og hann fær alltof lítið hrós fyrir varnarhlutverk sitt í liðinu. En það er einn leikmaður sem á þennan titil virkilega skilið - engu minna en Dirk Nowitzki - og það er Jason Kidd. Kidd sem er einungis 38 ára gamall er á sínu 17. ári í deildinni. Framtíðar hall-of-famer sem er einn besti leikstjórnandi allra tíma. Hefur tvisvar sinnum beðið ósigur í NBA úrslitunum með New Jersey Nets en vinnur loksins verðskuldaðan titil. Það er ekki annað hægt en að gleðjast með honum.
Fyrir LeBron James, Dwyane Wade og Miami Heat þá eru þetta augljóslega vonbrigði. Liðið var sett saman til að vinna titla og þeir lofuðu að vinna titla (ekki færri en 8 sagði LeBron). Sú gagnrýni og það hatur sem liðið fékk síðastliðið ár var oft óréttmætt. Eina sem það gat gert til að þagga niðrí the haters var að vinna titil. Það gekk ekki eftir. Hvað þá? Í fyrsta lagi heldur gagnrýnin áfram en nú á hún miklu meira rétt á sér. Í öðru lagi verður mikið talað um hvað liðið þarf að gera til að vinna titil. Á að skipta Bosh? Reka Coach Spo? Gefa öllum annan séns? Í þriðja lagi verður rætt um hvort að LeBron og Wade geti virkað saman. Mjög líkir leikmenn inn á vellinum sem þurfa boltann til að vera effective í sókninni. Er það hugsandi að skipta öðrum? Ég sé það ekki gerast en það verður rætt um það. Ekki ósvipað og eftir The Decision þá verður þetta Miami lið undir smásjánni fram að næsta tímabili.
Heitur: Jason Terry, Mavs. Hann getur þá afpantað tímann hjá tattú-fjarlægingarstofunni. 27 stig á 11 af 16 í skotum. Mótorkjafturinn bakkaði upp talið í sér með því að skora 24,0 stig á 68% nýtingu í síðustu tveimur leikjunum.
Tölfræði moli dagsins: Dallas var +18 með Brian Cardinal inná. Heat var -25 með Lebron James inná. Í hinni epísku baráttu The King vs. The Custodian var það The Custodian sem gekk af velli sem sigurvegari. Hvítir menn hafa ekki fagnað titli hjá einum leikmanni jafn mikið síðan Mark "Mad Dog" Madsen var að raka til sín titlum með Lakers.
Rusl leiksins: Dwyane Wade og Lebron James. Wade byrjaði ágætlega og skilaði fínum tölum, 17 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar en hann hvarf í fjórða leikhluta þar sem hann tapaði jafn mörgum boltum (dripplaði boltanum m.a. af fætinum af sér) og skotum sem hann hitti úr. Kóngurinn var með 21 stig á 9 af 15 í skotum og 7 stig í fjórða leikhluta sem er ekki svo slæmt, en 6 tapaðir boltar og sú staðreynd að cHeat var -25 með kónginn inná er það. Þegar þú kallar þig "The Chosen one" (og tattúverar það á bakið á þér!) þá má maður gera þá kröfu að þú takir leikinn yfir þegar liðið þitt þarf á því að halda. Sem Lebron gerði ekki.
Ruðningur leiksins: Dwyane Wade hleypur niður the Custodian og fær svo tæknivillu fyrir að þræta við dómarann sem bónus.
MVP Seríunnar: Dirk Nowitzki, Mavs. Dirk, þú rokkar!

Twitter leiksins I: @mcuban.

Líkt og Dirk átti skilið titil sem leikmaður þá á Mark Cuban skilið titil sem eigandi. Það hefur enginn annar eigandi kafað jafn djúpt í vasa sína og hann. Hinsvegar er tilhugsun um Mark Cuban upp í rúmi með Larry O'Brien bikarinn frekar truflandi.
Twitter leiksins II: @swish41.

Maður hélt að þessi endemis vitleysa að kalla sjálfa sig world champions væri bara bundið við Bandaríkjamenn en nei, Dirk lítur á sjálfan sig sem World Champion þrátt fyrir að hafa unnið titil í deild sem er bara spiluð í tveimur löndum.
Twitter leiksins III: @KingJames veit afhverju hann er ekki búinn að vinna titil.

Þetta er alveg rétt hjá honum ef The Greater Man upstairs er Lord & Savior Dirkus Christ.
Twitter IV: @funnyordie. LeBron er kannski enginn Jordan, en...

Quote leiksins I: LeBron var spurður að því hvort það færi í taugarnar á honum hversu mikið af fólki gleðjist yfir því að sjá hann mistakast. LeBron svaraði því þannig að það böggaði hann ekki því hann væri enn þá ríkur og frægur og hatararnir þyrftu á endanum að snúa aftur að lifa sínu venjulega lífi á sínum meðallaunum. Algjör hágæða topp fáviti.
"Absolutely not. Because at the end of the day, all the people that was rooting on me to fail, at the end of the day they have to wake up tomorrow and have the same life that they had before they woke up today. They have the same personal problems they had today. I'm going to continue to live the way I want to live and continue to do the things that I want to do with me and my family and be happy with that. They can get a few days or a few months or whatever the case may be on being happy about not only myself, but the Miami Heat not accomplishing their goal, but they have to get back to the real world at some point."
Quote leiksins II: "Our fans just punked the shit out of Miami Heat fans." - Mark Cuban í beinni útsendingu.
"Slagsmál" leiksins: Udonis Haslem og DeShawn Stevenson lentu eitthvað saman í leikhléi og svo blönduðu Mario Chalmers og DeShawn Stevenson sér í leikinn. Haslem, Chalmers og Stevenson fengu allir tæknivillu og leikurinn hélt áfram. Einstaklega ómerkileg uppákoma þegar hún er borin saman við alvöru Finals slagsmál.
Freudenschade leiksins: Þó að nær öll körfuboltaþjóðin hafi glaðst yfir því að sjá LeBron tapa þá held ég að varla nokkur maður sé ánægðari en Dan Gilbert sem tweetaði þessu eftir leikinn.
Já, það eru ekki til neinar styttri leiðir segir maðurinn sem keypti Cleveland liðið þegar LeBron var í það og fór svo í smábarnafýlu þegar LeBron vildi breyta um lið og spila með betri leikmönnum. Hræsni alla leið.
Djammari leiksins: Dirk er þekktur fyrir góðar djammmyndir og að sjálfsögðu slær hann ekki slöku við eftir að verða meistari.
Auðvitað Das Bootar Dirk bjórinn eins og ekkert sé. Maðurinn er þýskari en þýskt klám.
Dirk og Cardinal láta þetta partý líta út eins og staffadjamm hjá Pennanum Eymundsson en ekki sigurpartý hjá NBA meisturunum.
Fleiri Mavs partý myndir hér.
Westbrook og World Peace takast á
Russell Westbrook og Metta World Peace fengu báðir tæknivillur fyrir þetta atvik. En átti heimsfriðurinn það skilið í þetta skiptið?
Tim Duncan og the Walk of Shame
Þegar það er troðið yfir þig jafn svakalega og hinn handleggsbrotni Caron Butler gerir þarna við Duncan þá ertu skyldugur til að taka the walk of shame aftur í sóknina.
LeBron James og Danny Granger eru ekki vinir
Það er ekki mikil ást í loftinu hjá LeBron James og Danny Granger.
Lance Stephenson gefur LeBron choke merkið
Lance Stephenson, leikmaður Pacers, var alveg með á hreinu hvers vegna LeBron klúðraði þessu víti.
Metta World Peace tæklar tvo OKC leikmenn
Metta World Peace varð ekki einn besti varnarmaðurinn í deildinni án þess að kunna eitt til tvö skítatrix.
Kevin Garnett lætur ekki trufla sig á vítalínunni
Það voru fleiri en Barkley og Shaq sem voru að rífa sig úr að ofan í gær. Spurning hvort KG hefði látið truflast ef þetta hefði verið Shaq sem var að bera sig.
The Shirt Off: Chuck vs. Shaq
Charles Barkley og Dr. Shaquille O'Neal voru í keppni um hver myndi ná bestum árangri í ræktinni og líta betur út ber að ofan.
Dwyane Wade tæklar Darren Collins
Ef þetta hefði verið Collins sem tæklaði Wade, hefði hann þá verið rekinn út úr húsi?
Metta World Peace er ekki vinsæll í Oklahoma City
Er til betri tónlist til að spila þegar Metta World Peace er kynntur til leiks heldur en Svarthöfðaþemað?
Topp 5 NBA mömmurnar
Snillingarnir hjá Basketball Jones tóku saman listann yfir topp 5 NBA mömmurnar.
NBA Playoffs: Önnur umferð - Vesturdeild
Eftir tvö sóp og tvo sjöunda leiki er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Vesturdeildar. Svarta Mamban mætir Zombie Sonics og Spurs kúrekarnir taka á móti Flop City.
NBA Playoffs: Önnur umferð - Austurdeild
Sex seríum af átta er lokið og er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildar á meðan úrslit fyrstu umferðar Vesturdeildar klárast í dag og á morgun.
Brian Scalabrine auglýsingin
Allar stórstjörnur leika í auglýsingum. Hvíta Mamban er engin undantekning.
Er Andrew Bynum bara alveg sama?
Mike Brown hlítur að vera sáttur við áhugann sem Andrew Bynum sýndi einu í leikhléi í síðasta leik Lakers og Nuggets.



