NBA Finals: Like a Bosh!

Dwyane Wade stöffar boltanum ofan í körfuboltahringinn.
[mynd 1 h]Það stefndi í einn eitt choke-job hjá Miami eftir að það klúðraði niður 14 stiga forystu en af öllum mönnum setti Chris Bosh sigurskotið þegar 40 sekúndur voru eftir. Dirk Nowitzki fékk tækifæri til að jafna leikinn en lokaskot hans geigaði og Miami fór með sigur í leik þrjú.
Dwyane Wade var besti maður vallarins og leiddi Miami liðið algjörlega. LeBron James virtist vera sáttur með að láta Wade stjórna leiknum og endaði einungis með 17 stig en gaf 9 stoðsendingar. Chris Bosh átti sigurkörfuna en fyrir utan það var hann frekar lélegur í leiknum. Hann skoraði 18 stig en þurfti 18 skot til þess og tók aðeins þrjú fráköst allan leikinn. Slíkur er styrkur Miami að það getur samt unnið leiki þó að stjörnuleikmenn eins og Bosh og LeBron eigi lélega leiki sóknarlega séð. Þegar LeBron var hjá Cleveland og átti svona off-leik þá var ekki séns fyrir liðið að vinna.
Dirk Nowitzki var frábær (en ekki hvað) og skoraði 34 stig úr 11 af 21 í skotum, setti öll níu vítin sín, hirti 11 fráköst og varði þrjú skot. Sérstaklega var hann öflugur í fjórða þar sem hann skoraði síðustu 12 stig Dallas liðsins. Dirk fékk voða litla aðstoð þar sem flestir liðsfélagar hans voru frekar mistækir í leiknum. Jason Kidd var fína 9-6-10 línu en tapaði boltanum fjórum sinnum.
Heitur: Dwyane Wade endaði leikinn með 29 stig úr 12 af 21 í skotum, 11 fráköst, þrjár stoðsendingar, stolin bolta og varið skot. Jon Barry (og eflaust margir aðrir því LeRobin var að trenda á twitter) sagði að þetta sannaði að Wade sé svokallaði "closer" í liðinu en ekki LeBron. Þessi ályktun er einstaklega heimskuleg í ljósi alls þess sem LeBron gerði í seríunum á undan. En hey, þegar körfuboltaspekingar fá séns til að gera lítið úr LeBron James þá sleppa þeir því ekki.
Rusl leiksins: Skotnýtingin hjá Dallas leikmönnum sem heita ekki Dirk Nowitzki. Ef þú tekur öll skot Dirk út þá fellur skotnýting liðsins úr 40% í 34.7%, þriggja stiga nýtingin úr 38.1% í 31.3% og vítanýtingin úr 81.5% í 72.2%. Hann getur þetta ekki einn maðurinn.
Quote leiksins: Einhver blaðamaðurinn sakaði LeBron um að höndla ekki pressuna seint í leikjum. Lebbs svaraði: "Watch what I did defensively and ask me a better question tomorrow".
Leiðinleg tölfræði leiksins: Þú heyrðir þetta í leiknum og munt heyra þetta aftur. Í þau 11 skipti frá því NBA Finals formattið breyttist í 2-3-2 og einvígið stendur 1-1 eftir fyrstu tvo leikina þá hefur liðið sem vann leik 3 ávallt unnið titilinn. Sem sagt, Miami Heat eru NBA meistarar 2011!
Twitter leiksins: @TheBillWalton. Af einhverri óskiljanlegri ástæðu er óendanlega gaman að hlægja að Chris Bosh - jafnvel í leikjum þegar hann hittir game winner.

Human-missile leiksins: Dwyane Wade fer á flug og tekur niður einn 38 ára gamlan Jason Kidd og einn 138 ára gamlan Dallas aðdáanda.
Flopp leiksins: Dwyane Wade með hræódýrt flopp.
Hattur leiksins: Scottie Pippen skartaði þessum fáránlega hatti á leiknum. Menn hafa nú verið handteknir fyrir minna en þetta!

Westbrook og World Peace takast á
Russell Westbrook og Metta World Peace fengu báðir tæknivillur fyrir þetta atvik. En átti heimsfriðurinn það skilið í þetta skiptið?
Tim Duncan og the Walk of Shame
Þegar það er troðið yfir þig jafn svakalega og hinn handleggsbrotni Caron Butler gerir þarna við Duncan þá ertu skyldugur til að taka the walk of shame aftur í sóknina.
LeBron James og Danny Granger eru ekki vinir
Það er ekki mikil ást í loftinu hjá LeBron James og Danny Granger.
Lance Stephenson gefur LeBron choke merkið
Lance Stephenson, leikmaður Pacers, var alveg með á hreinu hvers vegna LeBron klúðraði þessu víti.
Metta World Peace tæklar tvo OKC leikmenn
Metta World Peace varð ekki einn besti varnarmaðurinn í deildinni án þess að kunna eitt til tvö skítatrix.
Kevin Garnett lætur ekki trufla sig á vítalínunni
Það voru fleiri en Barkley og Shaq sem voru að rífa sig úr að ofan í gær. Spurning hvort KG hefði látið truflast ef þetta hefði verið Shaq sem var að bera sig.
The Shirt Off: Chuck vs. Shaq
Charles Barkley og Dr. Shaquille O'Neal voru í keppni um hver myndi ná bestum árangri í ræktinni og líta betur út ber að ofan.
Dwyane Wade tæklar Darren Collins
Ef þetta hefði verið Collins sem tæklaði Wade, hefði hann þá verið rekinn út úr húsi?
Metta World Peace er ekki vinsæll í Oklahoma City
Er til betri tónlist til að spila þegar Metta World Peace er kynntur til leiks heldur en Svarthöfðaþemað?
Topp 5 NBA mömmurnar
Snillingarnir hjá Basketball Jones tóku saman listann yfir topp 5 NBA mömmurnar.
NBA Playoffs: Önnur umferð - Vesturdeild
Eftir tvö sóp og tvo sjöunda leiki er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Vesturdeildar. Svarta Mamban mætir Zombie Sonics og Spurs kúrekarnir taka á móti Flop City.
NBA Playoffs: Önnur umferð - Austurdeild
Sex seríum af átta er lokið og er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildar á meðan úrslit fyrstu umferðar Vesturdeildar klárast í dag og á morgun.
Brian Scalabrine auglýsingin
Allar stórstjörnur leika í auglýsingum. Hvíta Mamban er engin undantekning.
Er Andrew Bynum bara alveg sama?
Mike Brown hlítur að vera sáttur við áhugann sem Andrew Bynum sýndi einu í leikhléi í síðasta leik Lakers og Nuggets.
