NBA Finals: Epískt kombakk, epískt tjók
Þegar rúmar sjö mínútur voru eftir af fjórða leikhluta setti Dwyane Wade hornþrist og kom Miami 15 stigum yfir. Dallas tók leikhlé og Wade og LeBron James fögnuðu eins og apar fyrir framan bekkinn hjá Dallas (sjá að neðan). Það sem fylgdi var 22-5 áhlaup hjá Dallas sem jafnaði seríuna. Wade og LeBron gerðu það sem þeir gera verst, þ.e. skjóta illa ígrunduðu þristum, Dallas spilaði góða vörn, hitti skotum og Dirk dró liðið í land.
Það var jafnt í hálfleik 51-51 en í þriðja leikhluta tók Miami forystuna fljótlega. Tapaðir boltar hjá Dallas breyttust í háloftatilþrif hjá LeBron og Wade. Á tímabili leit þetta út eins og fullvaxta karlmenn á hestasterum gegn litlum pissublautum mömmustrákum en einhvern veginn var Dallas aldrei langt undan. Meira að segja Bibby var að spila vel og hitta skotum. Á tímabili í þriðja var hann með fleiri stig en Dirk Nowitzki og spekingar og besserwisserar þegar búnir að gefast upp á Dallas (meðal annars sá sem skrifar þetta). En ef það er eitthvað sem maður ætti að vera búinn að læra frá þessu Dallas liði þá er það að það gefst aldrei upp og engin forysta gegn þeim er örugg.
Nú verða þrír næstu leikir haldnir í American Airlines Center í Dallas. Það er bara gleðiefni fyrir körfuboltaáhugamenn að Dallas skuli hafa jafnað seríuna. Ég hefði lagt fjölskyldudjásnið undir að Dallas hefði aldrei geta unnið seríuna ef þeir hefðu lent 0-2 undir.
Heitur: Dirk Nowitzki á síðustu mínútunum. 9 síðustu stig Dallas. Svægi.
Rusl leiksins: Chris Bostrich. 12 stig og átta fráköst á 40 mínútum. 4 af 16 í skotum og lét Dirk bruna framhjá sér á síðustu sekúndum leiksins og skora game winner. Tveir lélegir leikir í röð hjá þriðja hjólinu.
Fögnuður leiksins: Þetta kveikti víst í Dallas og startaði kombakkið hjá þeim. Hestaskítur. Ef þú ert að spila í NBA Finals þá áttu ekki að þurfa einhverja auka mótiveringu, auk þess sem þessi "fögnuður" er engu meiri en hvert annað NBA lið gerir á þessum tímapunkti þegar það hittir stóru skoti og hitt liðið tekur leikhlé.
Steve Nash leiksins: Meistari Nash mætti á svæðið ásamt nýju kærustunni. Vel gert Nash, vel gert.
Twitter leiksins: @ronartest gefur okkur öllum auka ástæðu til að halda með Dallas Mavericks. Ó Guð láttu Dallas vinna þrjá í röð.

Alley-oop merki leiksins: Það er sama hvað Bostrich gerir, það er allt eitthvað svo aulalegt.
Westbrook og World Peace takast á
Russell Westbrook og Metta World Peace fengu báðir tæknivillur fyrir þetta atvik. En átti heimsfriðurinn það skilið í þetta skiptið?
Tim Duncan og the Walk of Shame
Þegar það er troðið yfir þig jafn svakalega og hinn handleggsbrotni Caron Butler gerir þarna við Duncan þá ertu skyldugur til að taka the walk of shame aftur í sóknina.
LeBron James og Danny Granger eru ekki vinir
Það er ekki mikil ást í loftinu hjá LeBron James og Danny Granger.
Lance Stephenson gefur LeBron choke merkiđ
Lance Stephenson, leikmaður Pacers, var alveg með á hreinu hvers vegna LeBron klúðraði þessu víti.
Metta World Peace tćklar tvo OKC leikmenn
Metta World Peace varð ekki einn besti varnarmaðurinn í deildinni án þess að kunna eitt til tvö skítatrix.
Kevin Garnett lćtur ekki trufla sig á vítalínunni
Það voru fleiri en Barkley og Shaq sem voru að rífa sig úr að ofan í gær. Spurning hvort KG hefði látið truflast ef þetta hefði verið Shaq sem var að bera sig.
The Shirt Off: Chuck vs. Shaq
Charles Barkley og Dr. Shaquille O'Neal voru í keppni um hver myndi ná bestum árangri í ræktinni og líta betur út ber að ofan.
Dwyane Wade tćklar Darren Collins
Ef þetta hefði verið Collins sem tæklaði Wade, hefði hann þá verið rekinn út úr húsi?
Metta World Peace er ekki vinsćll í Oklahoma City
Er til betri tónlist til að spila þegar Metta World Peace er kynntur til leiks heldur en Svarthöfðaþemað?
Topp 5 NBA mömmurnar
Snillingarnir hjá Basketball Jones tóku saman listann yfir topp 5 NBA mömmurnar.
NBA Playoffs: Önnur umferđ - Vesturdeild
Eftir tvö sóp og tvo sjöunda leiki er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Vesturdeildar. Svarta Mamban mætir Zombie Sonics og Spurs kúrekarnir taka á móti Flop City.
NBA Playoffs: Önnur umferđ - Austurdeild
Sex seríum af átta er lokið og er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildar á meðan úrslit fyrstu umferðar Vesturdeildar klárast í dag og á morgun.
Brian Scalabrine auglýsingin
Allar stórstjörnur leika í auglýsingum. Hvíta Mamban er engin undantekning.
Er Andrew Bynum bara alveg sama?
Mike Brown hlítur að vera sáttur við áhugann sem Andrew Bynum sýndi einu í leikhléi í síðasta leik Lakers og Nuggets.

