Kaaaahnnnn!

Dags: fimmtudagurinn 15. september 2011
Eftir Sturla Stígsson | Greinar

David Kahn, framkvæmdarstjóri Minnesota Timberwolves
David Kahn, framkvæmdarstjóri Minnesota Timberwolves

 

Er David Kahn versti framkvæmdarstjórinn í NBA? Sumir virðast halda það. En hvað hefur Kahn gert svona slæmt af sér til að verskulda þennan titil?

  • Við minnumst ekki einu sinni á ummæli hans í nýliðavalinu í ár.
    Við minnumst ekki einu sinni á ummæli hans í nýliðavalinu í ár.
    Skipti Al Jefferson burtu fyrir Kosta Koufus og tvo valrétti (annar varð að Donatas Motiejunas). Jefferson var með 19 stig og 10 fráköst á síðasta tímabili á meðan Koufus var með 3 stig í 39 leikjum fyrir Timberpoops áður en honum var skipt til Denver. Jefferson þurfti náttúrulega að fara til þess að Kevin Love myndi blómstra, en það þýddi samt ekki að Kahn ætti að skipta honum burtu fyrir notaðan klósetpappír og klink.
  • Gaf Darko "Manna from Heaven" Milicic 4 ára, 20 milljón dollara samning. Darko, sem hafði lýst því yfir að hann ætlaði að hætta í NBA og fara aftur til Evrópu var ekki lengi að skipta um skoðun þegar Kahn veifaði þessum samningi framan í hann. Og hvað fékk Kahn fyrir þessar milljónir? 9 stig, 5 fráköst og 2 varin skot per leik. Darko hefur alltaf haft hæfileikana en það eru að minnsta kosti 5 ár síðan allir sáu að hann hefur ekki hjartað til að spila í deildinni. Allir nema Kahn það er að segja.
  • Valdi Jonny Flynn með sjötta valréttinum árið 2009 rétt eftir að hann valdi Ricky Rubio með þeim fimmta. Ef við horfum framhjá þeim sögum að valið á Flynn hafi valdið því að Rubio ákvað að koma ekki til liðsins þá um haustið, þá hefur Flynn samt verið algjört bust í deildinni. Það lítur sérstaklega illa út í ljósi þess að maðurinn sem var valinn á eftir honum í nýliðavalinu var Stephen Curry.
  • Réð Kurt Rambis sem þjálfara liðsins sumarið 2009. Kurt, sem er þekktastur fyrir að hafa verið tæklaður í leik af forvera sínum hjá Timberwolves, passaði aldrei fyrir hópinn sem Kahn var búinn að safna saman enda sást það á árangrinum sem var 32 sigrar og 132 töp. Enn verra var svo hvernig Kahn stóð að brottrekstri Kurts frá félaginu því í stað þess að reka hann strax og tímabilið var búið þá drógu Kahn það fram í miðjan júlí þrátt fyrir að vera löngu búinn að ákveða örlög hans. Og til að topp fagmennsku sína þá gat Kahn ekki sagt honum upp í eigin persónu heldur lak því í fjölmiðlana og lét Rambis frétta það þannig.
  • Hann réð Rick Adelman sem næsta þjálfara liðsins. Nema hvað hann gerði það ekki. Sögurnar sem nú berast eru á þá leið að Adelman finnist Kahn vera svo mikill bjáni að allar samningarviðræðurnar hans við félagið fóru í gegnum eigandann, Glen Taylor. Þetta er bara uppskrift að áhugaverðu tímabil.

Ég veit ekki hvort hann Kahn sé versti framkvæmdarstjórinn í deildinni (Isiah Thomas er nú enn að tosa í einhverja strengi hjá New York) en ég veit að næsta tímabil þá verður einhver staðar í frosnum auðnum Minnesota Rick Adelman að öskra þessi orð...

 

Nýjast á Fúsíjama TV!

Silkimjúkar sendingar

Rajon Rondo finnst ekki leiðinlegt að senda boltann.

Westbrook og World Peace takast á

Russell Westbrook og Metta World Peace fengu báðir tæknivillur fyrir þetta atvik. En átti heimsfriðurinn það skilið í þetta skiptið?

Tim Duncan og the Walk of Shame

Þegar það er troðið yfir þig jafn svakalega og hinn handleggsbrotni Caron Butler gerir þarna við Duncan þá ertu skyldugur til að taka the walk of shame aftur í sóknina.

LeBron James og Danny Granger eru ekki vinir

Það er ekki mikil ást í loftinu hjá LeBron James og Danny Granger.

Lance Stephenson gefur LeBron choke merkið

Lance Stephenson, leikmaður Pacers, var alveg með á hreinu hvers vegna LeBron klúðraði þessu víti.

Metta World Peace tæklar tvo OKC leikmenn

Metta World Peace varð ekki einn besti varnarmaðurinn í deildinni án þess að kunna eitt til tvö skítatrix.

Kevin Garnett lætur ekki trufla sig á vítalínunni

Það voru fleiri en Barkley og Shaq sem voru að rífa sig úr að ofan í gær. Spurning hvort KG hefði látið truflast ef þetta hefði verið Shaq sem var að bera sig.

The Shirt Off: Chuck vs. Shaq

Charles Barkley og Dr. Shaquille O'Neal voru í keppni um hver myndi ná bestum árangri í ræktinni og líta betur út ber að ofan.

Dwyane Wade tæklar Darren Collins

Ef þetta hefði verið Collins sem tæklaði Wade, hefði hann þá verið rekinn út úr húsi?

Metta World Peace er ekki vinsæll í Oklahoma City

Er til betri tónlist til að spila þegar Metta World Peace er kynntur til leiks heldur en Svarthöfðaþemað?

Topp 5 NBA mömmurnar

Snillingarnir hjá Basketball Jones tóku saman listann yfir topp 5 NBA mömmurnar.

NBA Playoffs: Önnur umferð - Vesturdeild

Eftir tvö sóp og tvo sjöunda leiki er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Vesturdeildar. Svarta Mamban mætir Zombie Sonics og Spurs kúrekarnir taka á móti Flop City.

NBA Playoffs: Önnur umferð - Austurdeild

Sex seríum af átta er lokið og er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildar á meðan úrslit fyrstu umferðar Vesturdeildar klárast í dag og á morgun.

Brian Scalabrine auglýsingin

Allar stórstjörnur leika í auglýsingum. Hvíta Mamban er engin undantekning.

Er Andrew Bynum bara alveg sama?

Mike Brown hlítur að vera sáttur við áhugann sem Andrew Bynum sýndi einu í leikhléi í síðasta leik Lakers og Nuggets.

Fylgdu okkur á
Facebook
Vefumsjón