Trúir þú á heitu höndina?
Hafa ekki flestir eitthverntíman dottið í stuð þegar þeir eru að skjóta körfu - hvort sem það er á æfingu, í leik eða bara í körfunni í bakgarðinum - og allur fjandinn er að detta? Eða þá horft á samherja eða andstæðing setja skot eftir skot ofan í og eina sem er hægt að gera er að hrista hausinn. Líkt og Dirk Nowitzki í fyrsta leik gegn Oklahoma City Thunder; af 39 skotum sem hann tók hitti hann 36. Hvað er í gangi þegar körfuboltahringurinn er eins og húllahringur fyrir skotmanninn?
Eins og ég sagði þá er þetta einskonar sannleikur fyrir alla sem spila, horfa á eða fylgjast með körfubolta. Tökum tvö nýleg dæmi. Í sjöunda leik milli Sundsvall Dragons og Norrköping Dolphins hitti Jakob Örn 7 þristum úr 11 tilraunum. Í samtali við Fréttablaðið gagnrýndi Hlynur Bæringsson skipulag Norrköping og tók sem dæmi: ,,Ég keyrði upp að körfunni og var ekkert sérstaklega líklegur til að skora, þó ég segi sjálfur frá. Samt tvímönnuðu þeir á mig og skildu eftir mann sem var búinn að setja niður sex þrista galopinn á kantinum. Ég gaf bara boltann á hann.“
Nú ætla ég ekki að gagnrýna Hlyn eða hans ummæli um lélegt skipulag Norrköping. Mér finnst þetta hinsvegar sýna í hnotskurn þá trú sem körfuboltamenn hafa á því að vera heitur. Hvort Jakob hafi verið búin að setja sex þrista eða engan í leiknum skipti í raun ekki máli. Jakob er hörkuskytta, í 51 leik með Sundsvall Dragons í vetur var hann með 42% nýtingu. Norrköping áttu ekki að skilja hann eftir opinn af þeirri ástæðu einni að hann er frábær skytta.
Annað dæmi er úr leik fimm milli Miami Heat og Philadelphia 76ers. 76ers voru þrem stigum undir og 16 sekúndur voru eftir. Andre Iguodala hafði verið “heitur” á lokamínútum og setti m.a. þrjú stökkskot - eitthvað sem hann er ekki góður í. Í stað þess að reyna að jafna leikinn með þrist keyrði Andre á LeBron James og tók stökkskot til að fá tvö snögg stig. Skotið klikkaði. Einn besti varnarmaður deildarinnar var að dekka leikmann sem er ekki góður sóknarmaður og ekki góð skytta. Lélegt skot? Ekki að mati Doug Collins. ,,Andre was making all those shots in the fourth quarter so, to me, that was a very good shot at the time.“ Sem sagt, maður sem hefur verið að þjálfa eða lýsa körfuboltaleikjum í 25 ár og er hálfgert legend í körfuboltanum taldi að skotið væri gott af því leikmaðurinn væri heitur.
Mér finnst þessi tvö dæmi sýna hversu inngróin sú hugmynd um hina heitu hönd er í huga okkar körfuboltaáhugamanna. Samt hefur þetta verið rannsakað í fjölda fjölda ára (fyrsta rannsóknin var gerð 1985) og engar sannanir hafa verið fundnar fyrir þessu. Þetta hefur verið margoft rætt í Bandaríkjunum - ofurbloggarinn Henry Abbott er þar enn og aftur fremstur í flokki - en ég hef ekki orðið var við þessa umræðu hér á landi. Mér fannst því tilvalið að skrifa um þetta og sjá hvað mönnum hér á landi finnst.
Westbrook og World Peace takast á
Russell Westbrook og Metta World Peace fengu báðir tæknivillur fyrir þetta atvik. En átti heimsfriðurinn það skilið í þetta skiptið?
Tim Duncan og the Walk of Shame
Þegar það er troðið yfir þig jafn svakalega og hinn handleggsbrotni Caron Butler gerir þarna við Duncan þá ertu skyldugur til að taka the walk of shame aftur í sóknina.
LeBron James og Danny Granger eru ekki vinir
Það er ekki mikil ást í loftinu hjá LeBron James og Danny Granger.
Lance Stephenson gefur LeBron choke merkið
Lance Stephenson, leikmaður Pacers, var alveg með á hreinu hvers vegna LeBron klúðraði þessu víti.
Metta World Peace tæklar tvo OKC leikmenn
Metta World Peace varð ekki einn besti varnarmaðurinn í deildinni án þess að kunna eitt til tvö skítatrix.
Kevin Garnett lætur ekki trufla sig á vítalínunni
Það voru fleiri en Barkley og Shaq sem voru að rífa sig úr að ofan í gær. Spurning hvort KG hefði látið truflast ef þetta hefði verið Shaq sem var að bera sig.
The Shirt Off: Chuck vs. Shaq
Charles Barkley og Dr. Shaquille O'Neal voru í keppni um hver myndi ná bestum árangri í ræktinni og líta betur út ber að ofan.
Dwyane Wade tæklar Darren Collins
Ef þetta hefði verið Collins sem tæklaði Wade, hefði hann þá verið rekinn út úr húsi?
Metta World Peace er ekki vinsæll í Oklahoma City
Er til betri tónlist til að spila þegar Metta World Peace er kynntur til leiks heldur en Svarthöfðaþemað?
Topp 5 NBA mömmurnar
Snillingarnir hjá Basketball Jones tóku saman listann yfir topp 5 NBA mömmurnar.
NBA Playoffs: Önnur umferð - Vesturdeild
Eftir tvö sóp og tvo sjöunda leiki er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Vesturdeildar. Svarta Mamban mætir Zombie Sonics og Spurs kúrekarnir taka á móti Flop City.
NBA Playoffs: Önnur umferð - Austurdeild
Sex seríum af átta er lokið og er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildar á meðan úrslit fyrstu umferðar Vesturdeildar klárast í dag og á morgun.
Brian Scalabrine auglýsingin
Allar stórstjörnur leika í auglýsingum. Hvíta Mamban er engin undantekning.
Er Andrew Bynum bara alveg sama?
Mike Brown hlítur að vera sáttur við áhugann sem Andrew Bynum sýndi einu í leikhléi í síðasta leik Lakers og Nuggets.
