Íslenskur þristur
Ég fór á leik KR og Njarðvíkur í gær. Ekki sérstaklega góður leikur þar á ferð; það var enn þá dálítill haustbragur yfir liðunum. Mikið af ungum og efnilegum leikmönnum voru spila en því fylgdi oft vandræðaleg mistök og tapaðir boltar. Það var lítið skorað og ekki mikið um tilþrif, fyrir utan eina ruddalega alley-oop troðslu í lok leiksins hjá David Tairu. Mannlegur gormur þar á ferð sem þarf að fylgjast með í vetur.
Það sem einkenndi leikinn dálítið var að það var reynt mikið af þriggja stiga skotum. Og ég legg áherslu á reynt því fjandinn hafi það þessi skot voru ekki að fara ofan í. Njarðvík tók 25 þrigga stiga skot og hitti sex á meðan KR tók 29 og hitti þremur. Samtals var þetta móðgandi léleg 16,6% skotnýting. Liðin múruðu hvorki meira né minna en 45 þriggja stiga skotum samtals í gær. Á tímabili klikkuðu liðin á 17 þriggja stiga skotum í röð. Þetta var ekkert minna en körfuboltaleg sjónmengun.
Mér fannst þetta sérstaklega áhugavert í ljósi þess að nú er þriggja stiga línan í 6,75 metra fjarlægð frá körfunni í stað 6,25. Ég hafði pælt dálítið í því hvort leikstíll íslenskra liða myndi breytast mikið við þetta. Evrópuboltinn í heild sinni byggist mikið í kringum þriggja stiga skotin í samanburði við NBA boltann (línan þar er í 7,24 metra fjarlægð). Ég taldi að þessi aukna fjarlægð myndi gera þó nokkrum mönnum ljóst að þeir væru ekki skyttur, en það virðist hafa verið þannig á undanförnum árum að næstum hver og einn einasti íslenski leikmaður telur sig vera skyttu af Guðs náð með algjörlega óumdeilt skotleyfi þegar þeir standa fyrir utan. Mönnum hlyti að vera ljóst að það er erfiðara á að skjóta á körfu sem er nú 50 cm lengra frá. Þetta gæti leitt til þess að þriggja stiga skotin yrðu færri, betur ígrundaðri og nýtingin þar af leiðandi hærri.
Horfandi á KR-Njarðvík leikinn þá sýndist mér ekkert hafa breyst. En auðvitað er glórulaust að draga ályktun af einum leik og því lagðist ég í smá tölfræðilega greiningu*. Ég tók saman meðaltal reyndra þriggja stiga skota og skotnýtingu liðanna í Iceland Express deildinni af þeim leikjum sem búnir eru. Þá bar ég það saman við Iceland Express deildarkeppnina í fyrra og svo einnig við NBA deildina í fyrra - svona til að sjá muninn á þessum tveim deildum. Aðeins þrjár umferðir eru búnar og þetta er mjög amatörsleg greining þannig að það er ekki hægt að draga of miklar ályktanir út frá þessu.
| Deild | Reynd 3ja stiga skot | 3ja stiga skotnýting |
| IE 11-12 | 21,1 | 31,8% |
| IE 10-11 | 25,8 | 33,7% |
| NBA 10-11 | 15** | 35,8% |
Þriggja stiga skotum hefur fækkað um 18% og nýtingin minnkað um 2%. Nú hef ég ekki hugmynd um hver skekkjumörkin gætu verið en það virðist vera að liðin leggi upp með að taka færri þriggja stiga skot. Líklegast mun nýtingin batna eitthvað þegar líður á tímabilið. Leikmenn eru hugsanlega enn að venjast nýju línunni og almennt þá held ég að nýtingin fari ávallt batnandi með hverri umferð Spurningin er hinsvegar hvort að liðin eigi eftir að aðlagast og taka færri þriggja stiga skot eða fara í sama form og áður henda upp hátt í 25 þriggja stiga skotum í leik. Ég vonast til að sjá hið fyrra gerast því ég held að fleirri þriggja stiga skot = verri nýting, og það getur verið fjandi leiðinlegt að horfa á leik breytast í þriggja stiga keppni þegar liðin eru rétt svo að hitta einu af hverju þremur skotum
* Tölfræðileg greining er eitthvað sem sárvantar í íslenskan körfubolta. Við erum mörgum ljósárum á eftir NBA boltanum í þeirri deild.
** Miðað við 40 mínútur. Meðaltalið hjá NBA liði í venjulegum 48 mínútna leik er 18.
Westbrook og World Peace takast á
Russell Westbrook og Metta World Peace fengu báðir tæknivillur fyrir þetta atvik. En átti heimsfriðurinn það skilið í þetta skiptið?
Tim Duncan og the Walk of Shame
Þegar það er troðið yfir þig jafn svakalega og hinn handleggsbrotni Caron Butler gerir þarna við Duncan þá ertu skyldugur til að taka the walk of shame aftur í sóknina.
LeBron James og Danny Granger eru ekki vinir
Það er ekki mikil ást í loftinu hjá LeBron James og Danny Granger.
Lance Stephenson gefur LeBron choke merkið
Lance Stephenson, leikmaður Pacers, var alveg með á hreinu hvers vegna LeBron klúðraði þessu víti.
Metta World Peace tæklar tvo OKC leikmenn
Metta World Peace varð ekki einn besti varnarmaðurinn í deildinni án þess að kunna eitt til tvö skítatrix.
Kevin Garnett lætur ekki trufla sig á vítalínunni
Það voru fleiri en Barkley og Shaq sem voru að rífa sig úr að ofan í gær. Spurning hvort KG hefði látið truflast ef þetta hefði verið Shaq sem var að bera sig.
The Shirt Off: Chuck vs. Shaq
Charles Barkley og Dr. Shaquille O'Neal voru í keppni um hver myndi ná bestum árangri í ræktinni og líta betur út ber að ofan.
Dwyane Wade tæklar Darren Collins
Ef þetta hefði verið Collins sem tæklaði Wade, hefði hann þá verið rekinn út úr húsi?
Metta World Peace er ekki vinsæll í Oklahoma City
Er til betri tónlist til að spila þegar Metta World Peace er kynntur til leiks heldur en Svarthöfðaþemað?
Topp 5 NBA mömmurnar
Snillingarnir hjá Basketball Jones tóku saman listann yfir topp 5 NBA mömmurnar.
NBA Playoffs: Önnur umferð - Vesturdeild
Eftir tvö sóp og tvo sjöunda leiki er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Vesturdeildar. Svarta Mamban mætir Zombie Sonics og Spurs kúrekarnir taka á móti Flop City.
NBA Playoffs: Önnur umferð - Austurdeild
Sex seríum af átta er lokið og er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildar á meðan úrslit fyrstu umferðar Vesturdeildar klárast í dag og á morgun.
Brian Scalabrine auglýsingin
Allar stórstjörnur leika í auglýsingum. Hvíta Mamban er engin undantekning.
Er Andrew Bynum bara alveg sama?
Mike Brown hlítur að vera sáttur við áhugann sem Andrew Bynum sýndi einu í leikhléi í síðasta leik Lakers og Nuggets.
