Hvað er að frétta af Philadelphia 76ers?

Dags: þriðjudagurinn 17. janúar 2012
Eftir Unnþór Jónsson | Spjald!

Sólin hefur ekki skinið skært hjá Philadelphia 76ers síðustu 10 árin. Eftir að hafa komist í úrslitin 2001, barist hetjulega gegn stórveldi Lakers og skiliðn nokkur eftirminnileg atvik (t.d. hið ógleymannlega crossover/step-over hjá Allen Iverson gegn Tyronn Lue) þá hafa 76ers verið í drullandi bullandi meðalmennsku - og það er fallega sagt. Þeir hafa komist fimm sinnum í úrslitakeppnina á 10 árum en aðeins einu sinni komist upp úr fyrstu umferð. Þeir hafa unnið 389 leiki en tapað 431 eða einungis 47% sigurhlutfall. Fjórum sinnum hafa þeir haft valkost lottó-valkost í nýliðavalinu og staðið sig svona la-la í þeim efnum.

 

Gangur þeirra hefur hinsvegar snúist við á þessu tímabili. Eftir 13 leiki hefur liðið sigrað 10 þeirra og er sem stendur í öðru sæti í Austurdeildinni, ekki langt á eftir Chicago Bulls. En er þetta bara gott start hjá þeim og á liðið eftir að koma hrapandi niður eða er þeir for real? 

 

Lous Williams leiðir 76ers með 16,1 stig að meðaltali í leik.
Lous Williams leiðir 76ers með 16,1 stig að meðaltali í leik.
Það er freistandi að afskrifa árangur þeirra sem ekkert meira en heppni þar sem engar drastíkar breytingar hafa verið gerðar á liðinu. Tölfræðin bendir hinsvegar til annars. 76ers hafa unnið hvern leik með u.þ.b. 15 stigum að meðaltali sem er næstum 5 stigum betra en næsta lið - Chicago Bulls. Það þýðir að þeir hafa ekki verið heppnir með einn og einn leik heldur unnið flesta leiki sína sannfærandi. Aftur á móti hefur leikjaplanið verið þeim í hag þar sem meðalvinningsprósenta andstæðinga þeirra er einungis 38%.

 

Eftir brotthvarf Iverson hefur stjarna liðsins verið Andre Iguodala. Það er hinsvegar morgunljóst að hann verður aldrei fyrsti valkostur mjög góðs liðs. Af þeim sökum hafa trade-orðrómar loðað við hann lengi og margir talið að 76ers væri betur komið með því að skipta honum. 76ers hafa hinsvegar haldið tryggð við hann og þó hann verði aldrei í flokk með LeBron, Kobe og Durant þá er hann samt lockdown varnarmaður og kemst ágætlega frá sínu hlutverki í sókninni (14 stig, 6 fráköst, 4 stoðsendingar, 45% skotnýting). Elton Brand er kominn á aldur og hefur tekið minna hlutverk í liðinu en mínútum hans hefur fækkað um 12 frá því á síðasta tímabili. Framtíðin í 76ers er björt þar sem af 10 mínútuhæstu leikmönnum liðsins eru átta undir 25 ára aldri. Hinir tveir eru Brand og Iguodala. Helst ber að fylgjast með Jrue Holiday (21 árs) sem er mögulega framtíðar All-Star leikmaður.

 

Jrue Holiday með sykursætt cross-over og finger-roll.


Doug Collins sættir sig ekki við meðalmennsku.
Doug Collins sættir sig ekki við meðalmennsku.
En hver þá ástæðan fyrir því að 76ers eru svona fjandi góðir í ár? Svarið er Doug Collins. Collins tók við liðinu í fyrra en ekki mikið breyttist þá. Liðið endaði með jafn marga sigra og töp. Sum verk taka hinsvegar sinn tíma. Boðskapur Collins um sterkan varnarleik hefur síast inn en liðað fær einungis á sig 86,2 stig að meðaltali, sem er næst besta í deildinni. Ef liðið heldur á sömu braut þá er Collins svo gott sem kominn með Coach of the Year verðlaunin. Og sem skiptir meira máli: liðið mun kannski drulla sér upp úr fyrstu umferð.

Nýjast á Fúsíjama TV!

Silkimjúkar sendingar

Rajon Rondo finnst ekki leiðinlegt að senda boltann.

Westbrook og World Peace takast á

Russell Westbrook og Metta World Peace fengu báðir tæknivillur fyrir þetta atvik. En átti heimsfriðurinn það skilið í þetta skiptið?

Tim Duncan og the Walk of Shame

Þegar það er troðið yfir þig jafn svakalega og hinn handleggsbrotni Caron Butler gerir þarna við Duncan þá ertu skyldugur til að taka the walk of shame aftur í sóknina.

LeBron James og Danny Granger eru ekki vinir

Það er ekki mikil ást í loftinu hjá LeBron James og Danny Granger.

Lance Stephenson gefur LeBron choke merkið

Lance Stephenson, leikmaður Pacers, var alveg með á hreinu hvers vegna LeBron klúðraði þessu víti.

Metta World Peace tæklar tvo OKC leikmenn

Metta World Peace varð ekki einn besti varnarmaðurinn í deildinni án þess að kunna eitt til tvö skítatrix.

Kevin Garnett lætur ekki trufla sig á vítalínunni

Það voru fleiri en Barkley og Shaq sem voru að rífa sig úr að ofan í gær. Spurning hvort KG hefði látið truflast ef þetta hefði verið Shaq sem var að bera sig.

The Shirt Off: Chuck vs. Shaq

Charles Barkley og Dr. Shaquille O'Neal voru í keppni um hver myndi ná bestum árangri í ræktinni og líta betur út ber að ofan.

Dwyane Wade tæklar Darren Collins

Ef þetta hefði verið Collins sem tæklaði Wade, hefði hann þá verið rekinn út úr húsi?

Metta World Peace er ekki vinsæll í Oklahoma City

Er til betri tónlist til að spila þegar Metta World Peace er kynntur til leiks heldur en Svarthöfðaþemað?

Topp 5 NBA mömmurnar

Snillingarnir hjá Basketball Jones tóku saman listann yfir topp 5 NBA mömmurnar.

NBA Playoffs: Önnur umferð - Vesturdeild

Eftir tvö sóp og tvo sjöunda leiki er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Vesturdeildar. Svarta Mamban mætir Zombie Sonics og Spurs kúrekarnir taka á móti Flop City.

NBA Playoffs: Önnur umferð - Austurdeild

Sex seríum af átta er lokið og er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildar á meðan úrslit fyrstu umferðar Vesturdeildar klárast í dag og á morgun.

Brian Scalabrine auglýsingin

Allar stórstjörnur leika í auglýsingum. Hvíta Mamban er engin undantekning.

Er Andrew Bynum bara alveg sama?

Mike Brown hlítur að vera sáttur við áhugann sem Andrew Bynum sýndi einu í leikhléi í síðasta leik Lakers og Nuggets.

Fylgdu okkur á
Facebook
Vefumsjón