Whoopass!
Það var æfingarleikur í gær hjá KFÍ, eldri Vs. yngri. Þeir yngri voru með mikinn kjaft fyrir leik, töluðu digurbarklega um eigið ágæti og væntanlega yfirburði þeirra í leiknum.
Meira
Það var æfingarleikur í gær hjá KFÍ, eldri Vs. yngri. Þeir yngri voru með mikinn kjaft fyrir leik, töluðu digurbarklega um eigið ágæti og væntanlega yfirburði þeirra í leiknum.
Hinn árlegi jólaleikur Fúsíjama og Tshagu (Heiðurshöll Fúsíjama) var í gærkvöldi.
Eftir æfingu hjá KFÍ í dag (þar sem ég minnti einna helst á "Ljósin eru á en það er enginn heima" brandarann) var tilkynnt að allir ættu að fara að selja klósettpappír í kvöld til styrktar liðinu.
Rúlluðum yfir Patreksfirðingana í gær, 93-71. Líklegast léttasti sigurleikur sem ég hef tekið þátt í.
Fer með KFÍ til Patreksfjarðar á morgun að keppa við heimamenn. Vígsluleikur nýja íþróttarhúsins þeirra og, ef ég fæ einhverju ráðið, en eitt tap þeirra á móti ofurveldi okkar N-Westfirðinga.
Jæja, maður fékk aldeilis að púla í dag. Baldur þjálfari taldi að dagurinn í dag væri öldungis fínn dagur til að svitna aðeins og hélt því sannkallaða púlæfingu.
KFÍ tapaði fyrir Drang áðan, 73-76, þrátt fyrir hetjulega baráttu frá samherjum mínum. Sem þýðir að maður verður að bíða enn um sinn eftir því að Shiran bjóði öllum hópnum út að borða á Fernandos.
Ég hef ágætan grun um að ég hafi brotið á mér þumalinn. Íþróttir eru hættulegar, haldið ykkur frá þeim.
Ég og Jakob Einar skelltum okkur í Stúdíó Dan í gær til að rækta líkama og sál. Eftir að hafa áttað okkur á því að við litum ekkert svo vel út í samanburði við steratröllinn þarna þá færðum við okkur inn í annað herbergi til að klára æfingarnar.
Fyrsta æfingin mín hjá KFÍ var í dag. Gekk bærilega þrátt fyrir að vera áberandi clueless í vörn og sókn.